- Hvernig þrif henta mér?
- Ef þú ert að panta stök þrif, þá mælum við með því að þú skoðir vel hvað er innifalið í hverjum þjónustuflokki og metir þínar þarfir útfrá því.
- Komið þið með allt?
- Já, við komum alltaf með öll hreinsiefni, tuskur, ryksugu o.þ.h. Hinsvegar er alltaf gott að vita ef það er góð ryksuga á heimilinu og ef það eru tröppur aðgengilegar; það léttir undir.
- Hvað tekur verkið langan tíma?
- Það fer eftir stærð húsnæðis, aðstæðum, þeirri þjónustu sem þú pantar og hve margir starfsmenn eru sendir í verkið. Bronsþrifin taka eðlilega stystan tíma, og gullþrifin lengstan.
- Þarf ég að vera heima á meðan þrifin eiga sér stað?
- Það er alveg undir þér komið. Þú getur verið heima, þú getur hleypt okkur inn og farið út á meðan eða ef þú verður alveg fjarverandi geturðu skilið lyklana eftir í lyklaboxi. Í reglubundnum þrifum er hentugt að láta okkur hafa lykil.